Fasófélagið -Ísland
Búrkína Fasó
Síðan 2015 hefur Búrkína Fasó, land sem hefur notið friðar í mörg ár, staðið frammi fyrir tíðum árásum jihadista. Hryðjuverkaárásir hafa aukist um 2000% á Sahel svæðinu síðustu 15 ár.
Yfir 20.000 manns hafa verið drepin síðan hryðjuverkahópar byrjuðu árásr í landinu. Einnig er yfir tvær milljónir manna á flótta innanlands. Margir aðrir hafa flúið yfir landamæri til Gana og Fílabreinsstrandarinnar. Margir þurfa að skilja eftir eigur sínar, akra og búfénað. Þetta veldur fæðu óöryggi og eykur fátækt í landinu.
Yfir sex þúsund skólum hefur verið lokað með þeim afleiðingum að yfir ein milljón barna hefur engan aðgang að menntun í dag.
Margar kirkjur og ýmsar opinberar stofnanir hafa verið lokaðar vegna ofbeldis og hótana frá hryðjuverkahópum.
Við í Fasófélaginu höfum það markmið að styðja við íbúa landsins og valdefla það.
Frá 2023 höfum við lagt áherslu á að hjálpa fólki sem er á flótta innanlands, styðja við ungmenni í námi og veita konum atvinnutækifæri.
Við bjóðum þér að taka þátt með okkur og rétta þeim hjálparhönd sem eru í neyð sérstaklega þeim sem eru í austur og norðurhluta landsins.
Það tekur aðeins nokkrar mínútur að gefa en afraksturinn af því breytir lífi margra og hefur áhrif á komandi kynslóðir.